Hópatilboð
Ef þú vilt fá tilboð fyrir hópinn þinn í golf, gistingu og veitingar þá endilega hafið samband í síma 486-6454 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
** Rauðu dagarnir 2024
- 1. maí - miðvikudagur
- Uppstigningardagur, 9. maí – fimmtudagur
- Annar í hvítasunnu, 20. maí – mánudagur
- Þjóðhátíðardagurinn 17. júní - mánudagur
- Frídagur verslunarmanna, 5. ágúst – mánudagur
Leiðbeiningar fyrir handhafa Golfmore afsláttarmiða
frá Golfklúbbnum Flúðir ( GF ) sem veita afsláttarkjör vegna golfleiks á Selsvelli sumarið 2024.
Stjórn GF ákvað í vor að taka upp afsláttamiðakerfi danska fyrirtækisins Golfmore vegna ýmissa samstarfssamninga í því skyni að færa rástímaskráningu og greiðslu vallargjalda alfarið á netið. Þetta á að hafa mikla hagræðingu í för með sér, auðvelda allt utanumhald og gera kylfingum auðveldara að bóka rástíma og greiða vallargjald.
Því miður hefur komið í ljós að sumir kylfingar hafa átt erfitt með að tileinka sér kerfið og virðist helsti vandinn vera sá að skráningin tekur of langan tíma en golfbox GSÍ gerir ráð fyrir að skráning og greiðsla taki ekki meira en 5 mínútur.
Hér að neðan eru leiðbeiningar sem ættu að auðvelda kylfingum að ljúka skráningu innan tilsetts tíma.
- Miðarnir eru ýmist á pappírsformi eða rafrænir.
- Hlaðið niður Golfmore appinu í símana ykkar til að sækja rafrænu miðana.
- Þar birtast rafrænu afsláttamiðarnir frá GF með logoi klúbbsins en þeir voru sendir í það netfang sem skráð er í golfbox GSÍ.
- Sumir hafa fengið tvennskonar miða. Annars vegar til notkunar um helgar og hins vegar virka daga. Á miðanum kemur fram sú upphæð sem kylfingur skal greiða í vallargjald ( ekki afsláttur ) og eins hve oft má leika Selsvöll á gildistíma miðans. Sé engin upphæð á miðanum ( Paid ) gildir hann sem greiðsla vallargjaldsins. Einnig kemur fram hvort einhverjar aðrar takmarkanir eru á notkun miðans.
- Á miðanum er strikamerki og undir því 7 stafa kóði ( bókstafir og tölustafir ) sem slá skal inn við skráningu.
Leiðbeiningar varðandi skráningu.
- Skrifið niður 7 stafa kóðann á Golfmore miðanum sem þið hyggist nota.
- Skráið ykkur inní Golfbox á GSÍ síðunni eða opnið golfbox appið í símanum.
- Veljið rástíma og bætið spilafélögum við, ef við á.
- Þá kemur upp heildarupphæð til greiðslu samkvæmt gjaldskrá.
- Veljið < VISTA> Þá kemur upp gluggi sem sýnir greiðsluskilmála klúbbsins ( GF ).
- Hakið við <Samþykki skilmálana>
- Þá er hægt að velja hnapp fyrir <Afsláttarkort> og síðan <Virkja afslátt>
- Þá kemur upp gluggi þar sem 7 stafa afsláttakóðinn er sleginn inn og <Staðfesta>.
- Þá kemur upp sama upphæð til greiðslu og stendur á Golfmore miðanum.
- Ljúkið síðan greiðslunni á venjulegan hátt með greiðslukorti.
Sé þessum leiðbeiningum fylgt ættu allir að geta auðveldlega lokið skráningunni og greiðslunni innan tilsetts tíma.